Velkomin
Drekafluga er hönnunar fyrirtæki þar sem áhersla er lögð á gæði lausna með greiningarvinnu og þróun þeirra með hliðsjón af sjálfbærni. Sérstaða þjónustunnar felst í því að lausnir eru þróaðar óháðar endanlegum búnaði og hefur viðskiptavinurinn fullt frelsi til þess að velja þá kostnaðarleið sem honum hentar hverju sinni fyrir endanlega útfærslu. Þar sem áhrif dagsbirtu teljast lykil áhrifavaldur birtu í byggingum að mati Drekaflugu, er þáttur greiningavinnunnar mikilvægur. Í framhaldi af niðurstöðum greiningavinnu er þar með hægt að staðfæra þörf fyrir rafmagnslýsingu og ljósastýringar.
Þegar hönnunarvinnan hefur verið unnin í samráði við notanda eða framkvæmdaaðila er hægt að ljúka hönnunargögnum og magntöku fyrir endanlega gerð kostnaðaráætlana, verklýsinga eða / og útboðsgagna.
Sendið okkur fyrirspurn og við svörum um hæl: info@drekafluga.is
Meira um Drekaflugu

























